Úrslit eru komin inn frá Meistaramótinu

Í gær lauk formlega veiðiprófatímabili ársins með Meistarmótinu sem deildin stóð nú fyrir í 4 sinn. Það var sem fyrr skemmtilegur dagur þar sem áhugafólki um sportið gafst tækifæri til að hittast, taka þátt í skemmtilegum viðburði yfir daginn með hundunum sínum og eiga svo góða kvöldstund með félögum og borða góðan mat, ásamt því […]

Meistarakeppni og kvöldverður 19. október

19.október n.k. verður Meistarakeppnin haldin og um kvöldið verður kvöldverður frá Grillvagninum. Stigahæsti hundur á veiðiprófum 2019 verður heiðraður. Munið að fara vel eftir leiðbeiningum við skráningu og greiða gjaldið núna inná reikning deildarinnar en ekki reikning HRFÍ. Reiknisnúmer Retrieverdeildar HRFÍ er 0322-26-010809, kt: 610809 0490

Úrslit frá síðasta veiðiprófi ársins 201913

Í blíðunni í morgun kláraði Retrieverdeildin síðasta veiðipróf ársins við Tjarnhóla. Sigurmon M. Hreinsson dæmdi, fulltrúi var Halldór G. Björnsson og prófstjóri Þórhallur Atlason. Prófað var í BFL og OFL. Bestu hundar voru. BFL, Ljónshjarta Fluga með 1.einkun, eigandi og stjórnandi Guðmundur Ragnarsson OFL, Klettavíkur Kara með 1.einkun, eigandi og stjórnandi Karl Andrés Gíslason. Það […]

Breytt staðsetning á prófi 201913 5.október n.k.

Næsta veiðipróf verður flutt frá Tjörn að Tjarnhólum.  Tjarnhólar eru á Nesjavallaleið hægra megin þegar ekið er austur, sjá kort. Dómari verður Sigurmon M. Hreinsson Fulltrúi HRFÍ Halldór Garðar Björnsson Prófstjóri Þórhallur Atlason Skráning er mjög góð og verður prófað í byrendaflokki ásamt opnum flokki.  Eins og áður í sumar má búast við að notaðar […]

Úrslit frá Deildarsýningu 28.september 2019

Retrieverdeildin stóð fyrir deildarsýningu sem haldin var í Reiðhöll hestamannafélagsins Mána í Reykjanesbæ í dag. Aðstaðan í höllinni var öll til fyrirmyndar og Lene Grönholm sá um veitingasölu sem var fyrsta flokks og á miklar þakkir fyrir sem og öll sýningarnefnd sem stóð mjög vel að þessu öllu. Gerde Groenweg frá Hollandi dæmdi og með […]

Búið að opna fyrir skráningu á Meistarakeppnina 19.október

19.október n.k. verður Meistarakeppnin haldin, hún er einskonar uppskeruhátið veiðiprófanna. Staðsetning er áætluð við Sólheimakot. Stefnt er að því að halda hana með sama hætti og verið hefur, það er prófað í tveimur flokkum um daginn og svo matur, verðlaun og eitthvað meira um kvöldið. Að auki verður sá háttur hafður á að verðlaun fyrir […]

Deildarsýningin um helgina 28.september

Deildarsýning Retrieverdeildar 2019 verður haldin næstkomandi laugardag, þann 28. september í Reiðhöll hestamannafélagsins Mána í Keflavík, Sörlagrund 6.  Sýningin hefst kl. 09:00 á keppni ungra sýnenda sem Theodóra Róbertsdóttir dæmir, keppt verður í bæði yngri og eldri flokki og byrjum við á eldri sýnendum.  Skráning á sýninguna var frábær, eða 96 hundar !  Þar sem […]

Búið að opna fyrir próf 201913 við Tjörn

Opnað hefur verið fyrir skráning á síðasta veiðipróf tímabilsins númer 201913. Prófið verður haldið við Tjörn sem er í Bláskógabyggð rétt við Syðri- Reyki 5.október n.k. Dómari verður Sigurmon Hreinsson, prófstjóri Þórhallur Atlason það var frábær mæting á síðast próf sem var haldið við Villingavatn og nú er að klára vertíðina með stæl og undirbúa […]