Opnað hefur verið fyrir skráningu á veiðipróf 202002 sem haldið verður við Seltjörn á Reykjanesi 16.maí n.k. Dómari verður Halldór Garðar Björnsson Fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon Prófstjóri Heiðar Sveinsson Vinsamlega athugið að gleymst hefur að uppfæra verð á skráningarsíðu, verðið er sem sagt kr.6.900,- með bráðargjaldi samkvæmt verðskrá HRFÍ. Skráningarfrestur er til miðnættis miðvikudaginn 6.maí. […]
Kæru félagar, Fyrsta veiðipróf ársins átti að fara fram 25.apríl n.k. og opna átti fyrir skráningu í dag. Í ljósi aðstæðna hefur verið ákveðið að fresta þessu veiðiprófi eða jafnvel fella niður, mið verður tekið af aðstæðum. Við viljum benda á mikilvægi þess að fara eftir reglum frá Almannavörnum, Sóttvarnarlækni og Landlækni. Hafið sérstaka gát […]
Á fyrsta fundi ræktunarstjórnar eftir ársfund var meðal annar tekið fyrir að skipta með sér verkum. Næsta starfsár verður verkaskipting eftirfarandi: Heiðar Sveinsson formaður Unnur Olga Ingvarsdóttir gjaldkeri Gunnar Örn Arnarson ritari Sunna Birna Helgadóttir og Óli Þór Árnason meðstjórnendur Það er spennandi ár framundan með þéttri dagskrá. 11 veiðipróf, 1 vinnupróf (WT), deildarsýning og […]
Ársfundur deildarinnar var haldinnn í gærkvöldi í Síðumúla 15. Fundargerð er komin inná netið og eins er ársskýrsluna að finna á heimasíðu deildarinnar undir „fundargerðir“ . Tvö sæti voru laus þar sem Sigrún Guðlaugardóttir og Unnur Olga Ingvarsdóttir voru búnar með sinn tíma. Unnur bauð sig fram til næstu tveggja ára og Óli Þór Árnason […]
Ársskýrsla stjórnar deildarinnar fyrir 2019 er kominn inná síðuna. það má finna hana undir fundargerðir undir „Ársfundur 2020“ Hugmyndin er að prenta bara nokkrar út fyrir fundargesti á miðvikudaginn þar sem raunin hefur verið undanfarin ár að þeim hefur oftast verið hent. Spörum pappírinn og lesum þetta í tölvum eða síma. Sjáumst á miðvikudaginn. linkur […]
Kæru Retrieverfélagar, Nú líður að ársfundi deildarinnar. Núverandi stjórn deildarinnar tók við góðu búi í lok janúar 2019. Deildin hefur átt frábært ár þar sem þátttaka í sýningum og á veiðiprófum er að vaxa til muna. Að auki var aðsókn að sýningarþjálfunum með mesta móti og síðan var staðið fyrir Veiði og vinnunámskeiði fyrir retriever […]
Árfundur deildarinnar verður haldinn í Síðumúla 15 miðvikudaginn 19.febrúar n.k. og hefst kl.20.00 Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf. • Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2019 • Farið yfir rekstarreikning fyrir 2019 • Val í nefndir • Kosið til stjórnar Retrieverdeildar. Tvö sæti eru laus til tveggja ára. • Önnur mál. Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn […]
Veiðinefnd retriever deildarinnar byrjar starfsárið 2020 með fræðslukvöldi fimmtudaginn 30. janúar klukkan 20:00 í sal HRFÍ, Síðumúla 15. Dagskrá kvöldsins Aðili frá Petmark, aðal styrktaraðila deildarinnar, verður með kynningu á fóðri o.fl. Heiðar J. Sveinsson fer yfir það helsta sem hafa skal í huga varðandi grunnþjálfun retriever hunda. Kaffi og með því. Allir velkomnir! Hvetjum […]
Nú liggur veiðiprófaáætlun 2020 fyrir, samþykkt af stjórn HRFÍ og öðrum sem koma að prófunum. Eins og áður er deildin styrkt af Petmark / Eukanuba, Bendir og Hyundai, svo bætist við í ár að Final Approach sem framleiðir ýmsar vörur sem eru veiðitengdar mun verða styrktaraðili á 4 prófum ársins og Meistarakeppni. FA mun gefa […]