Á ársfundi deildarinnar 24.janúar s.l. voru samþykktar tilllögur um breytingar á veiðiprófsreglum. Veiðinefnd, dómarar og stjórn Retrieverdeildar höfðu áður samþykkt og farið yfir umræddar breytingar. Stjórn HRFÍ samþykkti uppfærðar relgur á síðast fundi sínum og eru þær nú komnar uppfærðar inná vef retrieverdeilar hér þessar reglur taka gildi frá og með 1.apríl 2019.
Author Archives: Heiðar J. Sveinsson
Sjálboðaliðasarf er stór hluti af starfsemi deildar eins og okkar. Eitt af því sem við stólum á er að stjórnun á viðburðum deildarinnar sé í samræmi við vinnureglur og lög deildarinnar. Eitt af lykilhlutverkum er meðal annars að sinna prófstjórn á veiðiprófum og vinnuprófum (WT). Af því tilefni er ákveðið að efna til prófstjóranámskeiðs 2.mars […]
Dagskrá veiði- og vinnuprófa (WT) er komin inná heimasíðu og má sjá hér. Það er óhætt að segja að lagt sé upp með metnaðarfulla dagskrá, 13 veiðipróf og 3 vinnupróf. Eins er prófað nýja hluti, fyrsta tveggja daga prófið með erlendum dómara er haldið í Hvammsvík í Hvalfirði í 11. og 12. maí, dómari Lars Nørgaard frá […]
Á ársfundi síðasta fimmtudag var meðal annars kosin ný stjórn Retrieverdeildar. Þannig háttaði til að óvenjumikil endurnýjun var á stjórn og komu 4 nýir aðilir inní stjórn. Sigrún Guðlaugardóttir var í fyrri stjórn og starfar áfram með nýrri stjórn Sigrún er Labrador eigand og stendur meðal annars að Leynigarðsræktun á Labrador. Sunna Birna Helgadóttir kom […]
Á ársfundi deildarinnar í gærkvöldi voru kynntar reglur um árstitla sem þátttakendur í veiðiprófum geta unnið til. Veiðinefnd og stjórn deildarinnar lögðu þessa tillögu fyrir stjórn HRFÍ og megin tilgangur var að gefa áhugasömum þátttakendum í veiðiprófum í öllum flokkum eitthvað til að stefna að og vonandi hvetja til frekari þáttöku og skemmtunar. Reglurnar eru […]
Uppskeruhátíð / Meistarakeppni fyrir retriever hunda. Næsta Meistarakeppni fyrir retriever hunda verður haldin 13.október 2018 við Sólheimakot, opnað hefur verið fyrir skráningu. Meistarakeppni er ætluð fyrir alla og nafnið kannski rangt í því samhengi. Hér gefst öllum kostur á að mæta með sinn hund, fara í skemmtileg próf þar sem dummy eru notuð og fá […]
Nú er öllum veiðiprófum lokið hjá Retrieverdeild í ár. Stigahæsti hundur á veiðiprófum í ár var ISFTCH Kolkuós Oxana Birta, eigandi Vilhelm Jónsson. Birta hafði mikla yfirburði í ár og áttu þau frábært ár. Alls voru haldin 10 próf, aukning var í skráningum í fyrsta sinn í langan tíma, alls voru 109 þátttakendur sem luku […]
Stjórn HRFÍ hefur samþykkt Hávar Sigurjónsson sem veiðiprófsdómara fyrir sækjandi hunda, Hávar hefur gengið með undanfarin misseri og tók lokapróf hjá Peter Nordin 11. og 12. ágúst síðastliðinn og eins og áður sagði veitti HRFÍ honum réttindi eftir að hafa fengið umsögn frá dómararáði og stjórn Retrieverdeildar. Við óskum Hávar til hamingju með dómararéttinding og […]
Hér er staðan í stigasöfnun á veiðiprófum í dag. vinsamlega sendið línu á heidar@bl.is ef þið sjáið villu í þessu. Enn eru eftir 4 próf og margt getur breyst. Gangi ykkur vel.
Opnað hefur verið fyrir skráningu á næstu veiðipróf 201807 og 08 sem haldin verða í nágrenni Reykjavíkur 11 og 12 ágúst. Prófdómari er Peter Nordin frá Svíþjóð, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon og prófstjóri Kári Heiðdal. Prófin verða haldin við Draugatjörn og Villingavatn sem eru vel þekktir prófstaðir með marga möguleika.