Retrieverdeildin ætlar að halda nýliðadag í samstarfi við hundaþjálfarann Albert Steingrímsson, boðið verður uppá kynningar og léttar æfingar í sækivinnu og hlýðni. Mæting með hunda og gott nammi. Þó höfðað sé til nýliða þá eru allir deildarmeðlimir að sjálfsögðu velkomnir! Hvetjum ykkur til að mæta og eiga frábæran dag með hundunum ykkar og kynnast örðum […]
Category Archives: Fréttir
Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202602 sem haldið verður við Sílatjörn í Hvítársíðu 9.maí 2026 Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 29.apríl Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi […]
Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 20261 sem haldið verður við Seltjörn við Grindavíkurveg 25.arpíl 2026 Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 14.apríl Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi […]
Ný stjórn hefur nú fundað og skipað í embætti – ekki eru miklar breytingar frá síðasta starfsári að undanskildum einum nýjum meðlim í stjórnina og við bjóðum þar Benedikt Bjarnason velkominn. Við bjóðum Axel Óskarsson velkominn í veiðinefndina og Írisi Emblu Jónsdóttur í sýningarnefndina. Miklar breytingar hafa orðið á heilbrigðisnefndinni þar sem Erla og Sesselja […]
Ársfundur Retrieverdeildarinnar var haldinn fimmtudaginn 26. febrúar í fundarsal HRFÍ á Melabraut. Fundurinn var ágætlega sóttur, hefðbundin aðalfundarstörf fóru fram og ný stjórn var kjörin. Ný stjórn mun koma saman fljótlega og skipta á milli sín hlutverkum. Stjórn deildarinnar 2026-2027 skipa: Benedikt BjarnasonDagný HinriksdóttirGísli Már ÁrnasonGuðni Þór BjörgvinssonSólrún Dröfn Helgadóttir Fundargerð aðalfundarins og ársskýrslan eru […]
Ársfundur Retrieverdeildarinnar verður haldinn þann 26. febrúar í sal HRFÍ að Melabraut 17 kl. 19:30. Dagskrá Við hvetjum alla til að mæta og bjóða sig fram í stjórn eða eitthvað af þeim skemmtilegu nefndum sem eru starfandi innan deildarinnar okkar. Það er alltaf pláss fyrir nýtt fólk í nefndum og allir velkomnir. Það þarf ekki […]
Hér er yfirlit yfir stigahæstu hunda deildarinnar árið 2025. Stuðst er við stigareglur deildarinnar nema fyrir stigahæstu ræktendur sem fer eftir reglum HRFÍ og reglum vinnuhundadeildar í hlýðni og spori. Lagfært eftirá þann 4. janúar kl. 20:20: Sætin í Golden lagfærð – „Jack Of All Trades Dagchells“ með 95 stig í vantaði sem tekur þá […]
Sunnudaginn 28. desember fengum við Frank Whyte 🏴 til að dæma jólasýninguna. Við þökkum honum kærlega fyrir gott starf sem hann sinnti bæði af fagmennsku og hlýju. Við þökkum öllum sem tóku þátt í sýningunni og sérstakar þakkir til Lene fyrir að standa vaktina við vöfflurnar sem ÓJ&K-ÍSAM styrkti okkur um hráefnin í vöfflurnar, kaffið […]
Dýralæknarnir Arna Ólafsdóttir og Guðrún Hrefna Guðjónsdóttir ætla að halda erindi fyrir okkur og fara yfir það helsta sem við þurfum að hafa í huga til þess að passa upp á og koma okkar hundum heilum heim. Þó þetta sé aðallega hugsað fyrir veiðihunda á veturna þá á þetta erindi líka við þá sem stunda […]
Veiðinefnd hefur ákveðið að opið verði fyrir skráningu til miðnættis 7.október

