Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202606 og 07 sem haldin verða við Berjaklöpp í Eyjafirði 20 og 21.júní 2026.
Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 10.júní Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.
Dómari verður Kjartan I. Lorange
Fulltrúi HRFÍ verður Fanney Harðardóttir
Prófstjórar verða Hlynur Már Jónsson og Sigurður B. Sigurðsson
Ekki verður valinn besti hundur í flokki, þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki verðlaun frá deildinni.
Stigahæsti hundur helgarinnar hlýtur Ljósavíkurbikarinn 2026.
Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur. Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is


