Stigahæstu hundar á veiðiprófum 2026

Nú er veiðiprófa tímabilinu lokið og stigataflan klár eftir tímabilið.

Það voru haldin 10 próf í sumar, þar af 2 með erlendum dómara en Trond Valtersnes dæmdi tvö próf við Villingavatn í lok maí.  Eins var einu prófi skipt upp í 3 kvöld í júlí eftir flokkum.  Það var góð mæting á alla viðburðina og er meðal þátttaka 13 hundar á prófi sem er með því hærra sem við höfum séð.

39 hundar tóku þátt í prófunum og af þeim voru nýir hundar 17 eða 44% og nýir þátttakendur voru 5 talsins.  Þátttaka í flokkum var nokkuð hefðbundin,  BFL að venju stærstur með 55,5% af heild, OFL 23,1% og ÚFL 22,3%.  Það var gaman að sjá hvað margir treystu sér uppí ÚFL í ár og bættust þar 3 hundar við í ár.  Árangur í flokkum var nokkuð hefðbundinn og almennt mjög góðir hundar og stjórnendur á ferð.

Stigahæstu 3 hundar ársins eru:

  1.  BFLW-23 OFLW-24 Drakeshead Fisk Of Leacaz með 49,4 stig eftir 5 próf, eigandi og stjórnandi Sigurmon M. Hreinsson
  2. BFLW-23 OFLW-24-25 Coolwater´s Ljosavikur Cono með 43,8 stig eftir 5 próf, eigandi og stjórnandi Ingólfur Guðmundsson
  3. BFLW-26 OFLW-26  Heiðarbóls Esja með 37,9 stig eftir 7 próf, eigandi og stjórnandi Heiðar Sveinsson

Við samlagningu á stigum er stuðst við eftirfarandi reglu:

  • Fyrstu 5 próf leggjast saman að fullu.
  • Eftir 5 próf eru öll próf lögð saman, deilt með fjölda prófa og marfaldað með 5, fæst með því meðaltal miðað við 5 próf.
  • Dæmi, hundur fór í 6 próf og fékk 73 stig, 73/6 = 12,16 x 5= 61 stig.

Undirritaður var viðstaddur 9 af 10 prófum og að venju var prófandi til fyrirmyndar og einstaklega skemmtilegt að vera í hópi með hunda og veiðifólki nú sem fyrr.

Kærar þakkir til allra sem komu að skipulagningu og aðstoð við að halda þessi próf, ekki sýst dómara sem gefa vinnu sína ár eftir ár til að við getum sinnt þessu sporti okkar, veiðinefnd, stjórn, prófstjórum, staðarhöldurum sem veita okkur leyfi til að halda prófin og svo má ekki gleyma sjálfboðaliðum á staðnum sem hafa staðið sig að vand með miklum sóma.

Deildin er einnig styrkt veglega og þökkum við Eukanuba, Acana og Bendi fyrir stuðninginn.

Til hamingju öll með ykkar hunda og þakkir fyrir góða samveru á tímabilinu, hlakka til að hitta ykkur aftur.