Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202609

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202609,  sem haldið verður við Húsavík 8. ágúst nk.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 10 dögum fyrir próf Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Margrét Pétrusdóttir

Fulltrúi HRFÍ verður Sigurður Magnússon

Prófstjórar verða Elías Frímann og Hilmar Valur

Ekki verður valinn besti hundur í flokki, þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki verðlaun frá deildinni.

Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is