Opnað hefur verið fyrir skráningu á veiðipróf 202311 við Draugatjörn

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202311 sem haldið verður 2. september við Draugatjörn.

Dómari verður Kjartan I. Lorange og fulltrúar HRFÍ verður Sigurmon Hreinsson.  

Prófstjóri verður Gísli Már Árnason

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba.

Skemmtilegt prófsvæði er við Draugatjörn og gaman að fylgjast með örstutt frá höfuðborgarsvæðinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is