Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202304 – 5 sem haldin verða laugardaginn 3 júní við Hringatjarnir við Villingavatn og sunnudaginn 4 júní. maí við Tjarnhóla.
Dómari verður Bjarne Holm frá Noregi, fulltrúar HRFÍ verða Kjartan I. Lorange á laugardeginum og Margrét Pétursdóttir á sunnudeginum.
Prófstjórar verða Þórhallur Atlason og Heiðar Sveinsson
Prófsvæðið við Hringatjarnir er um 50 km sjá kort.
Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba.
Starfið hefur byrjað mjög vel og góð þátttaka verið á prófum. Mikilvægt fyrir okkur að hafa öfluga styrktaraðila, þátttakendur og sjálfboðaliða.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is

