Á morgun miðvikudaginn 24.mars verður ársfundur Retriever deildar haldinn í húsakynnum HRFÍ að Síðumúla 15.
Verkefnið eru hefðbundin ársfundarstörf.
- Farið yfir ársskýrslu stjórnar fyrir 2020
- Farið yfir rekstrareikning fyrir 2020
- Kosið um tengilið fyrir labrador
- Kosið til stjórnar Retrieverdeildar. Þrjú sæti eru laus til tveggja ára.
- Val í nefndir
- Stighæsti hundur á veiðiprófum 2020 heiðraður
- Önnur mál.
Samkvæmt reglum um ræktunardeildir er stjórn skipuð 5 stjórnarmeðlimum og eru þeir kosnir til 2 ára, tveir og þrír í senn. Nú eru þrjú sæti laus og eru það sæti Gunnars Arnar Arnarsonar, Heiðars Sveinssonar og Sunnu Birnu Helgadóttur, Sunna gefur kost á sér áfram.
Við hvetjum ykkur kæru félagsmenn að gefa kost á ykkur til að starfa í stjórn og nefndum deildarinnar. Það er skemmtilegt að starfa í kringum áhugamálið, styrkur okkar er að sem flestir gefi kost á sér og að þátttakendur séu með mismunandi sýn og áhuga. Þá verður starfið fjölbreyttara og meiri líkur á að það falli að fjöldanum.
Hér má sjá upplýsingar um nefndir og deildina https://www.retriever.is/deildin/
Ársskýrsla deildarinnar er kominn inn á vefsíðu undir fundargerðir og má finna hana hér
Ef það eru einhver sérstök mál sem þið viljið koma að á ársfundi til umræðu væri gott að senda erindi áður, það er ekki skylda en gefur færi á meiri umræðum.