Category Archives: Fréttir

Búið að opna fyrir vinnu- og veiðipróf á deildarviðburði

Nú hefur verið opnað fyrir skráningu á vinnupróf WT sem verður haldið 13.júlí að Murneyrum og veiðipróf 201806 sem verður haldið við Þrándarholt 15.júlí. Þessi próf eru deildarviðburðarprófin og vonandi list fólki á þessa nýlundu að hafa WT á föstudeginum. Þá er prófað með dummy og á 5 mismunandi stöðvum. Prófað verður í öllum flokkum. […]

Veiðipróf á Melgerðismelum 2018

Tvöfalt veiðiprófið verður haldið á Melgerðismelum helgina 23.-24. júní næstkomandi. Að loknu prófi á laugardeginum verður slegið upp grillveislu í félagsheimilinu Funaborg semstaðsett er á Melunum. Allir eru velkomnir í matinn óháð því hvort tekið er þátt í veiðiprófinu eða ekki. Verð og skráning Skráningarfrestur er til þriðjudagsins 19. júní Fullorðnir greiða 3000 kr. 16 […]

Búið að opna fyrir skráningu á Melgerðismela

Búið er að opna fyrir skráningu á próf 201804 og 05 við Melgerðismela í Eyjafirði. Þessi próf hafa verið að jafnaði best sóttu veiðiprófin undanfarin ár.  Mjög gott prófsvæði, öll umgjörð norðanfólks til mikillar fyrirmyndar og svo skemmir ekki að þarna er alltaf rétt veður. Dómarar verða Halldór Björnsson og Sigurmon M. Hreinsson og verða […]

Veiðipróf 201803 við Sílatjörn 2. júní

Laugardaginn 2. júni verður haldið veiðipróf á vegum Retrieverdeldar HRFÍ. Prófið verður haldið við Sílatjörn á Hvítársíðu sem er skemmtilegt prófsvæði, áhorfendavænt og með mjög góðu aðgengi fyrir áhorfendur. Nafnakall verður við Sílatjörn kl. 09:00 og hvetjum við alla til að mæta og fylgjast með flottum hundum þreyta próf í frábæru umhverfi. Dómari – Sigurmon […]

Próf 201802 úrslit

Próf 201802 fór fram við Tjarnhóla í morgun og gekk mjög vel. Dómari var Margrét Pétursdóttir, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon, dómaranemi Hávar Sigurjónsson og prófstjóri Gunnar Örn Arnarson. 6 hundar tóku þátt í BFL og allir fengu engun. Besti hundur var Klettavíkur Kara með 1.einkun, eigandi Karl Andrés Gíslason úrslit eru komin inná gagnagrunninn http://data.retriever.is/vidburdir.asp?pid=huntView Karl […]

Búið að opna fyrir próf 201803 við Sílatjörn

Búið er að opna fyrir skráningu á próf 201803 sem haldið verður við Sílatjörn í Hvítársíðu í Borgarfirði, 2.júní n.k. Dómari verður Sigurmon M. Hreinsson Prófstjóri Þórhallur Atlason. Umhverfi Sílatjarnar og prófsvæðið er eitt það besta sem við höfum fyrir veiðipróf. Eins og fyrr skorum við á þá sem fyrirhuga þátttöku að skrá sig sem […]

Veiðipróf 201802 við Tjarnhóla.

Næsta próf verður haldið við Tjarnhóla laugardaginn 12.maí n.k. nafnakall er kl.10.00 Prófdómari verður Margrét Pétursdóttir, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon, dómaranemi Hávar Sigurjónsson og prófstjóri Gunnar Örn Arnarson. Skemmti og göngunefnd mun bjóða uppá kaffi á staðnum. 6 hundar skráðir allir í BFL, hlökkum til að sjá ykkur.