Í ljósi aðstæðna hefur veiðinefnd ákveðið að fresta meistarakeppninni í ár. Ástandið í þjóðfélaginu býður ekki uppá uppskeruhátíð eins og hún á að vera, hertar reglur núna gera það að verkum að seinka þyrfti jafnvel þar til í lok mánaðar og það er mjög óljóst. Dagsbirta er að styttast ansi mikið, rjúpnahelgar að skella á. […]
Category Archives: Fréttir
Nú þegar veiðiprófum er lokið er stigasöfnun komin á hreint. Stigahæsti hundur 2020 er OFLW-19 FTW-20 ISFTCH Heiðarbóls Dimma, eigandi og stjórnandi Heiðar Sveinsson í öðru sæti er FTW-19 ISFTCH Ljósavíkur Nínó, eigandi og stjórnandi Ingólfur Guðmundsson, þetta er 7 árið í röð sem Nínó er í topp 3 sem stigahæsti hundur, en það er […]
Í dag lauk veiðiprófatímabilinu formlega með síðasta prófinu sem haldið var við Villingavatn. Dómari var Sigurmon M. Hreinsson, fulltrúi HRFÍ Margrét Pétursdóttir og prófstjóri Arnar Tryggvason. 15 hundar voru í prófi og prófað var í öllum flokkum. Sigurmon setti upp skemmtileg og krefjandi próf í öllum flokkum sem reyndu á hunda og stjórnendur í takt […]
Eins og áður hafði komið fram var fyrirhugað að veita Deildarbikarinn (Hólabergsbikarinn) fyrir sameiginlegan árangur á Meistarasýningu HRFÍ sem halda átti 26. september nk. og veiðiprófi 202011 sem verður haldið 27. september. Nú hefur Meistarasýningunni verið frestað til 24. október sökum covid aðstæðna, prófið verður að óbreyttu á sínum tíma. Sjá frétt hér Hólabergsbikarinn verður […]
Síðasta próf ársins verður við Villingavatn sunnudaginn 27.september nk. Dómari verður Sigurmon M. Hreinsson, fulltrúi HRFÍ Margrét Pétursdóttir, prófstjóri Arnar Tryggvason. Sigurmon leysir Hávar af og Margrét leysir Sigurð af. Deildarsýning var fyrirhuguð þann 26. september og var henni breytt í tegundarsýningu og retriever hundar sem íslenskir dómarar eru til fyrir verða dæmdir 26.september. Deildarbikarinn […]
Kæru félagsmenn. Eins og staðan er í dag er orðið ljóst að við munum ekki halda deildarsýningu með hefðbundnu sniði. Það er ekki valkostur að fá Jan-Erik dómara til landsins til að dæma við þær aðstæður sem eru uppi í dag og of óljóst með hvernig ástandið verður og því hefur verið fallið frá því. […]
Opnað hefur verið fyrir skráningu í síðasta próf sumarsins númer 202011 sem haldið verður við Villingavatn 27.september nk. Dómari verður Hávar Sigurjónsson, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon og prófstjóri Arnar Tryggvason.
Eftir metskráningu í fyrstu 8 próf ársins datt skráning niður í næsta próf sem átti að vera við Blönduós og aðeins 4 hundar skráðir. Prófið var því fellt niður og við komum fílefld til baka í næsta próf sem stefnt er að 26.september.
Eitt af því sem deildin hefur tekið saman undanfarin ár er skor á veiðiprófum. Staðan á veiðiprófum er hér að neðan og endilega hafið samband ef eitthvað er rangt skráð þarna, betur sjá augu en auga og eins er alltaf hætta þegar gögn eru flutt handvirkt yfir í excel. Reglur um stigagjöf má finna inná […]