Opnað hefur verið fyrir skráningu á kvöldpróf 202608, 9.júlí, 16.júlí og 23.júlí við Tjarnhóla

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202608,  sem haldin verða við Tjarnhóla BFL 9. júlí, OFL 16. Júlí og Úfl-b 23. júlí nk. Prófin verða haldin á fimmtudagskvöldum.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 10 dögum fyrir hvert próf Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari 9.júlí í BFL verður  Kjartan I. Lorange, 16.júlí í OFL verður Þórhallur Atlason og 23.júlí í ÚFL-b verður Jens Magnús Jakobsson.

Fulltrúar HRFÍ verða Jóhann Jónsson, Dagný Hinriksdóttir og Víðir Lárusson

Prófstjórar verða Víðir Lárusson, Gísli Már Árnason og Dagný Hinriksdóttir.

Ekki verður valinn besti hundur í flokki, þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki verðlaun frá deildinni.

Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is