Opnað fyrir skráningu á próf 202404-5

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202404 og 5 sem haldin verða við Sílatjörn og Bláfinnsvatn 1. og 2. júní nk.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 26. maí.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómarar verða Kjartan I Lorange 1.júní við Sílatjörn, fulltrúi HRFÍ Sigurður Magnússon og Margrét Pétursdóttir verður dómari við Bláfinnsvatn 2.júní, fulltrúi HRFÍ Sigurmon M. Hreinsson.   

Prófstjórar eru Dagný Hinriksdóttir og Víðir Lárusson

Deildarbikarinn verður veittur stigahæsta hundi á prófinu 1.júní. Deildarbikarinn er gefinn af Guðrúnu Björgu Ragnarsdóttur og ræktun hennar Klettavíkurræktun. Hvetjum ykkur öll kæru félagar til að skrá og taka þátt í þessari skemmtilegu uppákomu.

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni

Sílatjörn er í Hvítársíðu rétt áður en komið er í Húsafell, Bláfinnsvatn er í Flókadal í Borgarfirði.  Góð svæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is

Prófsvæði við Sílatjörn
Bláfinnsvatn prófsvæði
Deildarbikarinn gefinn af Klettavíkurræktun