Opnað fyrir skráningu á próf 202401

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202401 sem haldið verður 13. apríl við Straum.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 7. apríl.  Þátttakendur er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Þórhallur Atlason og fulltrúi HRFÍ verður Margrét Pétursdóttir.  

Prófstjóri verður Heiðar Sveinsson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni

Straumur er svæðið við Straumsvík, leiðin er skýrð hér á meðfylgjandi korti. Keyrt inn frá Reykjanesbraut á móts við Straum, svæðið er vinnusvæði og við erum í góðu samstarfið við verktakann ÍAV. Farið varlega og sjáumst hress.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

ath að fréttin hefur verið uppfærð og prófið verður haldið við Straum

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is