Ársfundur deildarinnar og heiðrun stigahæstu hunda

Ársfundur Retrieverdeildarinnar verður haldinn þann 15. febrúar í sal HRFÍ að Melabraut 17 kl. 20:00.

Dagskrá

  1. Kosning fundastjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
  3. Breytingartillögur
  4. Kosið til stjórnar, 3 sæti laus til tveggja ára
  5. Kosið í nefndir (sýninganefnd, veiðinefnd, göngunefnd og vefsíðunefnd)
  6. Önnur mál
  7. Hlé
  8. Heiðrun stigahæstu hunda 2023

Við hvetjum sem flesta til að mæta og bjóða sig fram í stjórn eða í eitthvað af þeim skemmtilegu nefndum sem eru starfandi innan deildarinnar. Það er alltaf pláss fyrir nýtt fólk í nefndum og allir velkomnir. Það þarf ekki að hafa reynslu bara áhuga 🙂

Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.

Kær kveðja
Stjórn Retrieverdeildar