Ársfundur Retrieverdeildarinnar verður haldinn þann 15. febrúar í sal HRFÍ að Melabraut 17 kl. 20:00.
Dagskrá
- Kosning fundastjóra og ritara
- Skýrsla stjórnar og ársreikningur
- Breytingartillögur
- Kosið til stjórnar, 3 sæti laus til tveggja ára
- Kosið í nefndir (sýninganefnd, veiðinefnd, göngunefnd og vefsíðunefnd)
- Önnur mál
- Hlé
- Heiðrun stigahæstu hunda 2023
Við hvetjum sem flesta til að mæta og bjóða sig fram í stjórn eða í eitthvað af þeim skemmtilegu nefndum sem eru starfandi innan deildarinnar. Það er alltaf pláss fyrir nýtt fólk í nefndum og allir velkomnir. Það þarf ekki að hafa reynslu bara áhuga 🙂
Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.
Kær kveðja
Stjórn Retrieverdeildar