Opið fyrir skráningu á próf 202302

Opnað hefur verið fyrir skráningu á annað próf tímabilsins nr 202302 sem haldið verður laugardaginn 22. apríl við Seltjörn.

Dómari verður Margrét Pétursdóttir fulltrúi HRFÍ verður Kjartan I. Lorange

Prófstjóri verður Heiðar Sveinsson.

Prófsvæðið við Seltjörn er um það bil 45 mínútna akstur frá Reykjavík við afleggjarann til Grindavíkur af Reykjanesbrautinni. Gott aðgengi og gott að fylgjast með prófi.

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hund í flokki og eru þau veitt af Eukanuba.

Starf eins og við höldum úti stendur og fellur með þátttakendum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Lokað er fyrir skráningu miðvikudaginn 12.apríl á miðnætti.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is