Laugardaginn 13.október 2018 var haldin Meistarakeppni Retrieverdeildarinnar við Sólheimakot. 14 hundar voru skráðir til leiks, níu hundar í flokknum „Opinn flokkur“ sem er blanda af BFL og OFL og fimm hundar í „Meistaraflokki“. Dómarar voru Margrét Pétursdóttir og Sigurður Magnússon og prófstjóri Þórhallur Atlason.
Úrslit keppninnar:
Meistaraflokkur
1 sæti með 95 stig Ljósavíkur Níno, stjórnandi, Ingólfur Guðmundsson
2 sæti með 84 stig Kola, stjórnandi Jens Magnús Jakobsson
3 sæti með 76 stig Hvar Er Fuglinn Lotta, stjórnandi Víðir Lárusson
Opinn flokkur
1 sæti með 96 stig Veiðivatna flugan Embla, stjórnandi, Sigurdór Sigurðsson
2 sæti með 92 stig Edgegrove Appollo of Fenway (Ross) Stjórnandi Hólmfríður Kristjánsdóttir
3 sæti með 89 stig Klettavíkur Kara, stjórnandi, Kjartan Andrés Gíslason
Prófstjóri óskar öllum þátttakendum til hamingju með árangurinn í keppninni. Einnig þakkar prófstjóri dómurum og hjálparfólki veitta aðstoð og styrktaraðilum fyrir stuðninginn.
Styrktaraðilar eru: Eukanuba, Acana, Hyundai og Bendir.