Heiðrun stigahæstu hunda 2016

Heiðrun stigahæstu retriever hunda á sýningum og veiðiprófum 2016 fer fram laugardaginn 21 janúar n.k. kl.14.00 í húsnæði HRFÍ við Síðumúla 15. Mæting 14.00 Kynning á veiði og vinnu námskeiði sem deildin stendur fyrir í sumar, þjálfari verður Trond Gjotterud. Kynning á dagskrá 2016 eins og hún liggur fyrir Heiðrun stigahæstu hunda Kaffi og spjall Það væri gaman að sjá góða mætingu á þennan viðburð, heiðra með því þá sem hafa unnið til þessara verðlauna og eins að hittast á fyrsta viðburði ársins og kynna sér það sem fram fer. Höfum í huga að félagið endurspeglar okkar áhuga við erum félagið. Á myndinni er hluti þeirra hunda og eigenda sem voru stigahæst 2015.