Meistaramót 2026

Meistaramót Retrieverdeildar verður haldið laugardaginn 17. október við Sólheimakot. Þar munu Guðlaugur Guðmundsson og Halldór Björnsson setja upp vinnupróf. Prófað verður í tveimur flokkum, í flokki minna vanir (bfl og ofl saman) og í úrvalsflokki. Dagskrá hefst klukkan 10. Skráningargjald er 7000kr fyrir fyrsta hund, 3500kr fyrir hund númer tvö sama stjórnanda en frítt fyrir hvern hund eftir það. Innifalið í skráningargjaldi er kvöldverður á lokahófi veiðinefndar. Skráningargjaldið greiðist inn á reikning deildarinnar, 0322 26 010809, kt:610809-0490

Um kvöldið verður slegið upp lokahófi í sal HRFÍ á Melabraut i Hafnarfirði, þar sem viðurkenning fyrir stigahæsta hund á veiðiprófi verður veitt. Einnig verða viðurkenningar veittar fyrir stigahæstu hunda í báðum flokkum Meistaramótsins. Kaffivagninn sér um veitingar en þau ætla að bjóða upp á dýrindis lambakjöt. Velunnarar Retrieverdeildar hafa einnig boðið fram veglega vinninga í happdrætti sem verður dregið úr um kvöldið.

Þeir sem vilja eingöngu skrá sig á lokahófið um kvöldið greiði 3500kr inn á sama reikning og sendið staðfestingu á retriever@retriever.is.

Fjölmennum og gerum okkur glaðan dag!