Meistaramót 2026

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Meistaramótið 2026.

Mótið verður 17.október og að vanda prófað í „minna vanir“ (BFL og OFL) og „meira vanir“ (ÚFL-b)

Skráningargjald er kr.7.000 og kr.3.500 fyrir hund númer tvö með sama stjórnanda. Ef stjórnandi er með fleiri hunda er ekki greitt fyrir þá. skráningargjald er jafnframt aðgangsmiði að kvöldverði um kvöldið.

Dómarar verða Halldór Björnsson og Guðlaugur Guðmundsson.

Prófstjórar verða Víðir Lárusson og Gísli Már Árnason

Prófstaður er Sólheimakot.

Nánari auglýsing verður birt fljótlega.

Vinsamlega athugið að skráningargjald er greitt inná reikning Retrieverdeildar 0322-26-010809, kt: 610809 0490.  EKKI SAMA OG VEIÐIPRÓFIN