Ársfundur Retrieverdeildar 2026

Ársfundur Retrieverdeildarinnar verður haldinn þann 26. febrúar í sal HRFÍ að Melabraut 17 kl. 19:30.

Dagskrá

  1. Kosning fundastjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
  3. Kosið til stjórnar, 3 sæti laus til tveggja ára
  4. Kosið í nefndir (sýninganefnd, veiðinefnd, göngunefnd og vefsíðunefnd)
  5. Önnur mál
  6. Hlé
  7. Heiðrun stigahæstu hunda 2025

Við hvetjum alla til að mæta og bjóða sig fram í stjórn eða eitthvað af þeim skemmtilegu nefndum sem eru starfandi innan deildarinnar okkar. Það er alltaf pláss fyrir nýtt fólk í nefndum og allir velkomnir. Það þarf ekki að hafa neina reynslu bara áhuga.

Við vekjum sérstaklega athygli á að reglur HRFÍ um ræktunardeildir var breytt á síðasta ári og varðandi kosningarétt og kjörgengi á ársfundi gildir eftirfarandi: „Kosningarrétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir sem eru skráðir eigendur hunda í deildinni og eru með greitt félagsgjald.“

Kær kveðja,
Stjórn Retrieverdeildar