Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202604-04 við Villingavatn 23. og 24. maí n.k.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202603 og 04 sem haldin verða við Villingavatn 23.og 24.maí 2026.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 13.apríl  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Trond Valdersnes frá Noregi.

Fulltrúi HRFÍ verður Þórhallur Atlason

Prófstjóri verða Dagný Hinriksdóttir og Gísli Már Árnason

Dómaranemi verður Guðlaugur Guðmundsson

Ekki verður valinn besti hundur í flokki, þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki fá verðlaun frá deildinni.

24.maí verður Retrieverbikarinn veittur þeim hundi sem dómari velur bestann í ÚFL-b þann dag.

Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is