Stjórn og nefndir 2026-2027

Ný stjórn hefur nú fundað og skipað í embætti – ekki eru miklar breytingar frá síðasta starfsári að undanskildum einum nýjum meðlim í stjórnina og við bjóðum þar Benedikt Bjarnason velkominn.

Við bjóðum Axel Óskarsson velkominn í veiðinefndina og Írisi Emblu Jónsdóttur í sýningarnefndina.

Miklar breytingar hafa orðið á heilbrigðisnefndinni þar sem Erla og Sesselja hafa sagt sig frá störfum. Við þökkum þeim innilega fyrir starfið sitt þar síðustu ár og sérstaklega að hafa komið þessu starfi á laggirnar. Þær skilja eftir sig skýrslu og niðurstöður um EIC sem unnar eru úr DNA dögunum sem deildin hefur haldið.

Skýrsla Heilbrigðisnefndar 2025
Skýrsla Heilbrigðisnefndar 2025 – EIC niðurstöður

Ný heilbrigðisnefnd hefur tekið til starfa en hana skipa Sólrún Dröfn Helgadóttir, Alexandra Rut Oddsdóttir og Sigrún Guðmundsdóttir.

Við í stjórninni þökkum enn og aftur öllum þeim sem hafa og eru að gefa sinn tíma í sjálfboðavinnu fyrir deildina okkar.