Niðurstaða ársfundar 2026

Ársfundur Retrieverdeildarinnar var haldinn fimmtudaginn 26. febrúar í fundarsal HRFÍ á Melabraut. Fundurinn var ágætlega sóttur, hefðbundin aðalfundarstörf fóru fram og ný stjórn var kjörin. Ný stjórn mun koma saman fljótlega og skipta á milli sín hlutverkum. Stjórn deildarinnar 2026-2027 skipa:

Benedikt Bjarnason
Dagný Hinriksdóttir
Gísli Már Árnason
Guðni Þór Björgvinsson
Sólrún Dröfn Helgadóttir

Fundargerð aðalfundarins og ársskýrslan eru nú aðgengilegar á heimasíðunni.

Mörg mikilvæg og skemmtileg verkefni bíða okkar á nýju starfsári, meðal annars endurnýjun samninga við styrktaraðila, vinna í nýrri heimasíðu og viðburðahald fyrir deildina.

Heiðrun stigahæðstu hunda deildarinnar á síðastliðnu ári fór einnig fram og við óskum öllum eigendum innilega til hamingju með árangurinn.