Það var sannkölluð veisla fyrir auga og hjarta þegar retrieverfólk úr öllum áttum kom saman á deildarsýningu Retrieverdeildarinnar þann 24. maí á Víðistaðatúni. Veðrið var frábært, fullt af flottum hundum og skemmtileg stemning eins og alltaf á deildarsýningunum okkar!
Dómarar sýningarinnar voru þær Marjo Jaakkola 🇫🇮 og Dinanda Mensink 🇳🇱 sem unnu sitt starf af fagmennsku og hlýju og hrósaðu deildinni fyrir gott skipulag og góða gestristni.
Við óskum öllum þátttakendum innilega til hamingju – og sérstaklega þeim sem lentu í úrslitum:
🏆 Bestu hundar sýningar – Best in Show (BIS) 🏆
- sæti – ISSHCH ISW23 Big Ben Ambasadorius (IS33959/22)
- sæti – ISJCH ISSHCH NORDICCH ISW23 24 Norðan heiða Vök (IS33713/22)
- sæti – ISJCH ISSHCH NORDICCH ISW24 Golden Magnificent Fine Line (IS33420/22)
- sæti – ISSHCH ISJCH NORDICCH ISW24 Heimsenda Öngull (IS25309/18)
Besta ungviði sýningar (3-6 mánuða)
- sæti – Brúnspor Atlas (IS40124/25)
- sæti – Golden Magnificent Negla (IS40540/25)
Besti hvolpur sýningar (6-9 mánuða)
- sæti – Great North Golden X Spirit (IS39941/25)
- sæti – Vetrarstorms Mitsuri (IS39656/24)
Besti ungliði sýningar
- sæti – Flatterhaft Enzo Bartoli (IS39693/24)
- sæti – Stjörnusteins Óskar (IS38137/24)
Besti öldungur sýningar
- sæti – CIE CIB ISCH ISJCH NORDICCH ISVETCH OB-I ISW22 Hrísnes Skuggi II (IS21239/15)
Besti ræktunarhópur sýningar
- sæti – Hrísnes
- sæti – Leynigarðs
- sæti – Gullhaga
Besti afkvæmahópur sýningar
- sæti – Big Ben Ambasadorius
🌟 Bestu hundar tegundar – Best of Breed (BOB) og Best of Opposite Sex (BOS) 🌟
Flat Coated Retriever (sjá öll úrslit hér)
BOB: ISJCH ISSHCH NORDICCH ISW23 24 Norðan heiða Vök (IS33713/22)
BOS: Flatterhaft Enzo Bartoli (IS39693/24)
Golden Retriever (sjá öll úrslit hér)
BOB: ISJCH ISSHCH NORDICCH ISW24 Golden Magnificent Fine Line (IS33420/22)
BOS: MECH BACH ROCH MKCH CACH SLOCH ISCH Jack Of All Trades Dagchells (IS39976/25)
Labrador Retriever (sjá öll úrslit hér)
BOB: ISSHCH ISW23 Big Ben Ambasadorius (IS33959/22)
BOS: ISSHCH Gullhaga Andrésína (IS32341/22)
Nova Scotia Duck Tolling Retriever (sjá öll úrslit hér)
BOB: ISSHCH ISJCH NORDICCH ISW24 Heimsenda Öngull (IS25309/18)
Við þökkum öllum sem tóku þátt – bæði með hundum og þeim sem störfuðu við sýninguna – fyrir að gera daginn eftirminnilegan. Það er alltaf gaman að hittast, fagna tegundunum okkar og sjá nýja og gamla vini innan deildarinnar okkar.
Við minnum á að hægt er að finna myndir og myndbrot frá sýningunni á Instagram síðu deildarinnar: @RetrieverdeildHRFI.
Við hlökkum strax til næstu sýningar – sjáumst þá með bros á vör og hunda í stuði! 🐾