Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202409 og 10

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202409 og 10 sem haldin verða við Villingavatn og Hringatjarnir 17.og 18. ágúst  nk.  

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 11. ágúst.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Lars Nordenhof frá Danmörku, fulltrúi HRFÍ verður Sigurður Magnússon.   

Prófstjórar verða Dagný Hinriksdóttir og Gísli Már Árnason

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Villingavatn og Hringatjarnir eru við Þingvallavatn rétt norðan við Úlfljótsvatn, gott aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Að venju hlýtur besti hundur seinni daginn í ÚFL-b Retrieverbikarinn sem gefinn er af Kolkuós ræktun.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is