Opnað fyrir skráningu á próf 202408

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202408 sem haldið verður við Draugatjörn við Helliðheiðarvirkjun 13.júlí nk.  

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 7. júlí.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Þórhallur Atlason, fulltrúi HRFÍ verður Sigurmon Marvin Hreinsson.   

Prófstjóri verður Dagný Hinriksdóttir

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Draugatjörn er upp á Hellisheiði rétt við Hellisheiðarvirkjun gott aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is