Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202403 sem haldið verður 11. maí við Tjarnhóla.
Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 5. maí. Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.
Dómari verður Sigurður Magnússon og fulltrúi HRFÍ verður Margrét Pétursdóttir.
Prófstjóri verður Ævar Valgeirsson
Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni
Tjarnhólar eru ca 20 km frá Reykjavík og sunnan við Nesjavallaveg. Gott svæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is