Opnað hefur verið fyrir skráningu á prófin 202202-03 sem haldin verða helgina 4 og 5. júní nk.
Dómari verður Trine-lise Tryterud frá Noregi, fulltrúi HRFÍ Halldór Björnsson og prófstjóri Guðrún Ragnarsdóttir.
Þetta próf er fyrirhugað að verði í nágrenni Reykjavíkur og var Draugatjörn eini ákveðni staðurinn. Við skoðun kom í ljós að álftapar er þar í hreiðurundirbúningi og því ekki prófhæft við tjörnina fyrr en síðsumars.
Tjarnhólar verða annan daginn og er prófstjóri ásamt veiðinefnd að skoða frekari staðsetningu í nágrenni Reykjavíkur og munu staðfesta síðar.
Eins og áður þetta sumar verður notast við „dummy“ í stað bráðar á þessum prófum. Stjórn og veiðinefnd munu fylgjast með þróun mála varðandi fuglaflensu og tilkynna hvenær fuglar koma inn aftur.
Trine-Lise hefur góða reynslu af þátttöku og því að halda próf í Noregi og víðar. Það verður áhugavert að taka þátt og fylgjast með hennar vinnu og uppsetningum. Í gegnum tíðina hefur það verið stór partur af starfi deildarinnar að fá erlenda dómara til að dæma fyrir okkur, gefur okkur innsýn í þróun á sportinu og veitir aðhald til okkar þar sem við höfum ekki kost á að sækja próf með okkar hundum til annarra landa.
Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba.
Aukalega verða aukaverðlaun á seinna prófinu 5.júní veitt af FA (Final Approach) fyirr besta hund í flokki.
Starf eins og við höldum úti stendur og fellur með þátttakendum, sjálfboðaliðum og styrktaraðilum.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com, www.bendir.is og www.fabrand.com