Meistarasýning Retrieverdeildar

Nú er opið fyrir skráningar hundavefur.is á retrieversýninguna sem haldin verður þann 7. maí í Keflavík. Síðasti skráningadagur er sunnudagurinn 17. apríl.

Það er um að gera að skrá fyrir páskafrí þar sem ekki verður hægt að fá aðstoð frá skrifstofunni í páskafríinu. Einnig þarf að vera búið að greiða árgjaldið til HRFÍ til þess að skráning teljist gild.

Sýningar á vegum deildarinnar eru alltaf mjög skemmtilegar og vel sóttar. Þær eru tilvaldar fyrir þá sem vilja prófa að sýna og kynna sér hvernig sýningar fara fram en einnig til þess að hitta fólk og spjalla.

Veitingasala verður á staðnum.

Tvær sýningaþjálfanir verða fyrir sýninguna og verða þær auglýstar á næstu dögum.