Gleðileg jól og farsælt komandi ár!

Kæru félagar, Um leið og stjórn Retrieverdeildarinnar óskar ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári viljum við þakka fyrir árið sem er að líða. Deildin heldur áfram að dafna með góðum anda og samheldni, enda frábært fólk sem að henni kemur.

Það er einmitt þannig sem við viljum hafa deildina okkar og við hlökkum til að kynna ykkur nýja dagskrá á nýju ári, en hún liggur nú til samþykktar hjá stjórn HRFÍ. Hlökkum til að hitta ykkur á viðburðum næsta árs. Fyrir hönd stjórnar,

Erla Heiðrún Formaður Retrieverdeildar HRFÍ