Stigahæstu retriever hundar á veiðiprófum 18 ágúst 2016

Að loknum 9 prófum af upphaflegum 12 eru línur að skýrast með stigahæstu hunda á veiðiprófum. Stigahæst er Kola með 61,4 stig úr 5 prófum. Reglur eru þær að eftir 5 próf er deilt í samanlögð stig með fjölda prófa og það síðan margfaldað með 5 til að fá út meðalgildi fyrir 5 próf. Þetta eru óbreyttar reglur frá upphafi stigagjafar. Þar sem eitt próf datt út eru eftir 2 próf og því enn möguleiki á breytingum á röðun. Ef þið sjáið einhverjar villur endilega látið vita.