Úrslit á Melgerðismelum fyrri daginn próf 201604

Komin inn úrslit frá fyrri degi á Melgerðismelum. Í dag var eins og endranær blíðuveður og sett voru upp frábær próf fyrir alla flokka. Kaj Falk Andreasen dæmdi OFL og ÚFL-B, Halldór Garðar Björnsson dæmdi BFL. Bestu hundar voru: BFL Bergmáls Bella með 1 einkun, eigandi Sigursteinn Guðlaugsson OFL Kolkuós Prati með 1 einkun og heiðursverðlaun, eigandi Sigurmon M. Hreinsson ÚFL-B Kola með 1 einkun og heiðursverðlaun, eigandi Heiðar Sveinsson Kokuós Míla fékk líka heiðursverðlaun í ÚFL-B, eigandi Ævar Valgeirsson. Halldór dómari og fulltrúi, Heiðar og Kola, Ævar og Míla, Sigurmon og Prati, Kaj og Sigursteinn.