Frá prófstjórum í prófum 201307 og 201308

Ágætu Retrievereigendur,
Um næstu helgi verður okkar stæsta hátíð eða deildarviðburðinn, tvöfalt veiðipróf með erlendum og innlendum dómurum og sýning með erlendum dómara.  Við verðum öll saman á tjaldsvæði og skemmtum okkur saman.  Það eru samt nokkrir hlutir sem við þurfum að virða :
1. Af tillitssemi við þá sem eru að fara með hunda í próf eða sýningu að ró verður að vera komin á svæðið um miðnætti hið allra síðasta
2. Við göngum hreinlega um svæðið og allir hundar verða í taum og við hirðum upp eftir þá.
3. Á prófsvæði og í kringum það er bannað að vera með lóðatíkur …. hvort sem er í bíl á bílaplani eða í kringum svæðið….. okkar hugsun er alltaf að vinna með þeim hundi sem er í prófi og vilja honum það allra besta !
4.  Skemmtum okkur vel saman … 🙂