Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202509 við Tjarnhóla 17.júlí nk.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202509 sem haldið verður fimmtudagskvöldið 17.júlí við Tjarnhóla og er eingöngu ætlað ÚFL-b

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 9. júlí.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Sigurður Magnússon fulltrúi HRFÍ verður Kristján Smárason   

Prófstjóri verður Dagný Hinriksdóttir

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Tjarnhólar eru miðja leið upp að Hengli á Nesjavallaleið frá Reykjavík. Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is