Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202504 við Draugatjörn

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202504 sem haldið verður við Traugatjörn laugardaginn 14. júní nk.

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 4. júní.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Jens Magnús Jakobsson, fulltrúi HRFÍ verður Dagný Hinriksdóttir   

Prófstjóri verður Jóhann Ingi Jónsson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Draugatjörn er staðset rétt við Helliðheiðavirkjun, keyrt inn að virkjun og svo til vinstri áður en komið er í dalbotninn. Gott aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is