Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202601 við Seltjörn 25.apríl n.k

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 20261 sem haldið verður við Seltjörn við Grindavíkurveg 25.arpíl 2026

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 14.apríl  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Þórhallur Atlason

Fulltrúi HRFÍ verður Jens Magnús Jakobsson

Prófstjóri verður Jóhann Jónsson

Ekki verður valinn besti hundur í flokki, þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki verðlaun frá deildinni.

Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is