Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202513 sem haldið verður við Hnúkatjörn við Blönduós 6.sept nk.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202513, sem er jafnframt síðasta formlega veiðiprófið þetta tímabil og haldið verður við Hnúkatjörn við Blönduós 6.september 2025

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 27.ágúst.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Þórhallur Atlason

Fulltrúi HRFÍ verður Sigurður B. Sigurðsson

Prófstjóri verður Jóhann Ingi Jónsson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Gott aðgengi er að prófstað og mun prófstjóri setja inn leiðarlýsingu þegar nær dregur.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is