Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202512 sem haldið verður í Eyjafirði 9.ágúst nk.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202512 sem haldið verður í Eyjafirði laugardaginn 9.ágúst 2025

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 30. júlí.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Þórhallur Atlason

Fulltrúi HRFÍ verður Fanney Harðardóttir

Prófstjóri verður Siguður B. Sigurðarson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Besti hundur í ÚFL hlýtur Retrieverbikarinn gefinn af Kolkuós ræktun

Mjög gott aðgengi er að prófsvæði og verða leiðarlýsingar settar inn þegar nákvæm staðsetning er klár við Þjórsárbakka.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is