Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf 202510 og 11

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202510 og 11 sem haldin verða við Murneyrar og þjórsárbakka 26 og 27.júlí

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 17. júlí.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Thrine lise frá Noregi

Fulltrúi HRFÍ verður Jens Magnús Jakobsson

Prófstjóri verða Finnbogi Liorange og Gunnar Örn Arnarson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Mjög gott aðgengi er að prófsvæði og verða leiðarlýsingar settar inn þegar nákvæm staðsetning er klár við Þjórsárbakka.  Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is