Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202508 sem haldið verður fimmtudagskvöldið 10.júlí við Tjarnhóla og er eingöngu ætlað OFL. Prófið hefst kl. 18.00 um kvöldið.
Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 2. júlí. Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.
Dómari verður Margrét Pétursdóttir fulltrúi HRFÍ verður Gísli Már Árnason
Prófstjóri verður Dagný Hinriksdóttir
Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.
Tjarnhólar eru miðja leið upp að Hengli á Nesjavallaleið frá Reykjavík. Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is
