Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202505 og 6 sem haldin verða 28 og 29. Júní á landi Berjaklappar í Eyjafirði..
Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 18. júní. Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.500 inná reikning HRFÍ 0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.
Dómari verður Ragnhild Hammelbo, fulltrúi HRFÍ verður Sigurður B. Sigurðsson
Prófstjóri verður Fanney Harðardóttir
Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.
Að auki er veittur Ljósavíkurbikarinn fyrir stigahæsta hund helgarinnar á báðum prófum samanlagt.
Berjaköpp er rétt innan við Akureyri að austanverðu á móts við flugvöllinn. Frábært aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.
Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.
Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is
