Stigastaða á veiðiprófum 2024  

Eftir að tekin hafa verið 9 próf 2024 og aðeins eitt próf eftir er þetta stigaskorið.

  • BFLW-23 Drakeshead Fisk Of Leacaz, eigandi Sigurmon M. Hreinsson er í efsta sæti eftir 5 próf með 47 stig
  • Heiðarbóls Max, eigandi Gylfi Kristjánsson er í öðru sæti eftir 5 próf með 42 stig
  • BFLW23 COOLWATER´S LJOSAVIKUR CONO, eigandi Ingólfur Guðmundsson er í þriðja sæti eftir 5 próf með 41 stig.

Bæði Fisk og Cono eru komnir með árangur til að sækja um OFLW-24.

Eftir að fyrsta próf féll niður vegna aðstæðna og lélegrar aðsóknar hefur verið nokkuð þétt aðsókn og í meðalagi frekar há eða um 12,2 hundar í prófi.  samtals eru þetta 108 þátttökur í ár og í fyrra voru þær 149 og þá 12 próf, verða eingöngu 10 próf í ár.

Nýliðun er með mesta móti, 14 hundar bæst við af samtals 33 hundum sem er 42% og hærra en við höfum séð síðan 2017 en þá voru nýir hundar 20 eða 53% af heildar þáttakendum.  Ef horft er til nýliða í sportinu, þ.e. hafa ekki verið með hund áður er það í sögulegu hámarki síðan ég fór að halda utan um það.  Eða 11 einstaklingar sem gerir 33% af þátttakendum.

Eins er ljóst á þátttöku að nýliðun er framundan í ÚFL-B þar sem einungis 5 hundar hafa tekið þátt og mjög mikil og góð þáttaka í OFL eða 11 hundar og 42 skráningar sem gerir 38,9% af skráningum ársins til þessa sem er hæðsta sem við höfum séð.

Aðrar tölulegar staðreyndir eru nokkuð í takt við undanfarin ár.

Til hamingju öll með hundana ykkar og takk fyrir frábæra þáttöku, nú er bara að fylla prófið fyrir norðan og njóta vel.

Athugið að ef þið sjáið villu í þessum innslætti endilega sendið mér línu.