Opnað hefur verið fyrir skráningu á veiðipróf 202411

Opnað hefur verið fyrir skráningu á próf nr. 202411 sem haldið verður við Hnjúkatjörn skammt frá Blöduósi 7. September nk.  

Opið verður fyrir skráningu þar til á miðnætti 1. september.  Þátttakendum er bent á að greiða prófgjaldið kr.8.130 inná reikning HRFÍ  0515-26-707729 og kt. 680481-0249. Eins er þátttakendum bent á að til að geta tekið þátt þarf stjórnandi að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ og ef eigandi er annar en stjórnandi þarf viðkomandi líka að vera búinn að greiða ársgjald í HRFÍ.

Dómari verður Kjartan I. Lorange, fulltrúi HRFÍ verður Þórhallur Atlason.   

Prófstjóri verður Þorsteinn Hafþórsson

Að venju verða veitt verðlaun fyrir besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba. Þeir hundar sem ná fyrstu einkunn í sínum flokki hljóta einnig verðlaun frá deildinni.

Að auki gefur Veiðhúsi Sakka útdráttarverðlaun „dummy launcher“ og verður einn af þátttakendu dregin út og fær þessi veglegu verðlaun.

Hnjúkatjörn er vel staðsett og flott prófsvæði í nágrenni Blönduós, gott aðgengi og gott prófsvæði fyrir próf og áhorfendur, að venju skerpum við á umgengni á prófstað og góða skapinu.

Við vonumst eftir góðri skráningu, vinsamlega verið í sambandi við prófstjóra ef þið getið starfað á prófinu, eins þátttakendur sem geta unnið í öðrum flokkum.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com og www.bendir.is