Ársfundur Retrieverdeildar

Ársfundur Retrieverdeildar verður haldinn þann 22. mars á skrifstofu HRFÍ kl. 20:00. 

Dagskrá
1. Fræðsluerindi
2. Kosning fundarstjóra og ritara
3. Skýrsla stjórnar og ársreikningur
4. Hlé
5. Kosið til stjórnar. Fjögur sæti laus sem kosið er um.
6. Kosið í nefndir (sýninganefnd, veiðinefnd, göngunefnd og vefsíðunefnd)
7. Önnur mál

Við hvetjum sem flesta til að mæta og bjóða sig fram í stjórn eða eitthvað af þeim skemmtilegu nefndum sem eru starfandi innan deildarinnar.
Kosningarétt og kjörgengi á ársfundum deilda hafa þeir, sem eru skráðir eigendur hunda eða hafa verið skráðir eigendur hunda í viðkomandi deild í tvö ár og skuldlausir við félagið það ár sem ársfundur er haldinn. Hjón hafa kosningarétt og kjörgengi hvort heldur þau greiða félagsgjald sem hjón eða í sitthvoru lagi sé annað þeirra skráð fyrir hundi í deildinni.

Kær kveðja
Stjórn Retrieverdeildar