Næsta veiðipróf verður flutt frá Tjörn að Tjarnhólum. Tjarnhólar eru á Nesjavallaleið hægra megin þegar ekið er austur, sjá kort.
Dómari verður Sigurmon M. Hreinsson
Fulltrúi HRFÍ Halldór Garðar Björnsson
Prófstjóri Þórhallur Atlason
Skráning er mjög góð og verður prófað í byrendaflokki ásamt opnum flokki. Eins og áður í sumar má búast við að notaðar verði endur í BFL og endur og gæsir í OFL ásamt svartfugli og máv eins og verið hefur.
Nafnakall verðru kl.9.00 laugardaginn 5.október.
Prófstjóri óskar eftir að þeir sem geti unnið á prófinu gefi sig fram við hann. Þórhallur í síma 8979904 eða í skilaboðum á facebook.