Sýningaþjálfun verður haldin næsta þriðjudag, 21. ágúst kl. 20:00 í bílastæðahúsinu Holtagörðum. Munið eftir að taka með ykkur góða skapið, sýningatauma, nammi fyrir voffana og skítapoka. Deildin þiggur gjarnan 500 krónur frá hverjum þátttakanda fyrir þjálfuna en aurinn fer í sjóð deildarinnar. Allir eru velkomnir, en lóðatíkur eru beðnar að taka tillit til rakka og halda sig aðeins frá rökkunum 🙂