Opnað hefur verið fyrir próf 202202

Opnað hefur verið fyrir skráningu á 202202 sem verður haldið við Tjarnhóla laugardaginn 14. maí n.k.

Dómari verður Jens Magnús Jakobsson, fulltrúi HRFÍ Sigurmon M. Hreinsson og prófstjóri Ævar Valgeirsson.

Tjarnhólar eru í nágrenni Reykjavíkur uppá Nesjavallaleið, frábært prófsvæði með góðri aðstöðu til að fylgjast með.

Þetta er annað prófið í sumar af 11 b-prófum og meistarakeppni.  Að auki stendur deildin fyrir tveimur deildarsýningum sem hefur ekki verið gert áður. Dagskrá má sjá hér.

Að venju verða veitt verðlaun besta hundi í flokki og eru þau veitt af Eukanuba.

Vonumst eftir að sjá góða skráningu og fína mætingu á prófið.

Styrktaraðilar eru deildinni mikilvægir og eins sjálfboðaliðar.  Það er gefandi að aðstoða við prófframkvæmd, tengir okkur við starfið, gefur okkur betri skilning á verkefnum, þeir sem eiga þess kost að vinna á prófinu vinsamlega gefið sig fram við prófstjóra.

Styrktaraðilar eru www.eukanuba.com, www.bendir.is og www.fabrand.com